top of page
HAFMAÐURINN
Þá hló Marbendill

Á Suðurnesjum er bæjaþorp nokkurt, sem heitir í Vogum, en raunar heitir þorpið Kvíguvogar, og svo er það nefnt í Landnámu. Snemma bjó bóndi einn í Vogum, er sótti mjög sjó, enda er þar enn í dag eitthvert besta útræði á Suðurlandi. Einhvern dag reri bóndi sem oftar, og er ekki í það sinn neitt sérlega að segja af fiskifangi hans. En frá því er sagt, að hann komi í drátt þungan, og er hann hafði dregið hann undir borð, sá hann þar mannslíki og innbyrti það. Það fann bóndi, að maður þessi var með lífi, og spurði hann, hvernig á honum stæði; en hann kvaðst vera marbendill af sjávarbotni. Bóndi spurði, hvað hann hefði verið að gjöra, þegar hann hefði ágoggast. Marbendill svaraði: "Ég var að laga andskjólin fyrir eldhússtrompnum hennar móður minnar. En hleyptu mér nú niður aftur." Bóndi kvað þess engan kost að sinni, "og skaltu með mér vera." Ekki töluðust þeir fleira við, enda varðist marbendill viðtals. Þegar bónda þótti tími til, fór hann í land og hafði marbendil með sér, og segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en bóndi hafði búið um skip sitt, að hundur hans kom í móti honum og flaðraði upp á hann. Bóndi brást illa við því og sló hundinn. Þá hló marbendill hið fyrsta sinn. Hélt bóndi þá áfram lengra og upp á túnið og hrasaði þar um þúfu eina og blótaði henni; þá hló marbendill í annað sinn. Bóndi hélt svo heim að bænum; kom þá kona hans út í móti honum og fagnaði bónda blíðlega, og tók bóndinn vel blíðskap hennar. Þá hló marbendill hið þriðja sinn. Bóndi sagði þá við Marbendil: "Nú hefur þú hlegið þrisvar sinnum, og er mér forvitni á að vita, af hverju þú hlóst." "Ekki gjöri ég þess nokkurn kost," sagði marbendill, "nema þú lofir að flytja mig aftur á sama mið, er þú dróst mig á." Bóndi hét honum því. Marbendill sagði: "Þá hló ég fyrst, er þú slóst hund þinn, er kom og fagnaði þér af einlægni. En þó hló ég hið annað sinn, er þú hrasaðir um þúfuna og bölvaðir henni, því þúfa sú er féþúfa full af gullpeningum. Og enn hló ég hið þriðja sinn, er þú tókst blíðlega fagurgala konu þinnar, því hún er þér fláráð og ótrú; muntu nú efna öll orð þín við mig og flytja mig á mið það, er þú dróst mig á." Bóndi mælti: "Tvo af þeim hlutum, er þú sagðir mér, má ég að vísu ekki reyna að sinni, hvort sannir eru, tryggð hundsins og trúleik konu minnar; en gjöra skal ég raun á sannsögli þinni, hvort fé er fólgið í þúfunni, og ef svo reynist, er meiri von, að hitt sé satt hvort tveggja, enda mun ég þá efna loforð mitt."

Bóndi fór síðan til og gróf upp þúfuna og fann þar fé mikið, eins og marbendill hafði sagt. Að því búnu setti hann skip til sjávar og flutti marbendil á sama mið, sem hann hafði dregið hann á; en áður en bóndi léti hann fyrir borð síga, mælti marbendill: "Vel hefur þú nú gjört, bóndi, er þú skilar mér móður minni heim aftur, og skal ég að vísu endurgjalda það, ef þú kannt til að gæta og nota þér. Vertu nú heill og sæll bóndi." Síðan lét bóndi hann niður síga, og er marbendill nú úr sögunni.

Það bar til litlu eftir þetta, að bónda var sagt, að sjö kýr sægráar að lit væru komnar þar í túnjaðarinn við fjöruna. Bóndi brá við skjótt og þreif spýtukorn í hönd sér, gekk svo þangað, sem kýrnar voru; en þær rásuðu mjög og voru óværar. Eftir því tók hann, að þær höfðu allar blöðrur fyrir grönum. Það þóttist hann og skilja, að hann mundi af kúnum missa, nema hann fengi sprengt blöðrur þessar. Slær hann þá með kefli því, er hann hafði í hendi sér, framan á granirnar á einni kúnni og gat náð henni síðan. En hinna missti hann, og stukku þær þegar í sjóinn. Þóttist hann þá skilja, að kýr þessar hefði marbendill sent sér í þakkar skyni fyrir lausn sína. Þessi kýr hefur verið hinn mesti dánumannsgripur, sem á Ísland hefur komið; æxlaðist af henni mikið kúakyn, sem víða hefur dreifst um land og er allt grátt að lit og kallað sækúakyn. En það er frá bónda að segja, að hann varð mesti auðnumaður alla ævi. Hann lengdi og nafn byggðar sinnar og kallaði af kúm þessum, er á land hans gengu, Kvíguvoga, er áður voru kallaðir Vogar.

Þjóðs. Jóns Árnas.

bottom of page